A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Framlengdur frestur á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum

| 17. maí 2021


Nú gildir sérstakur íþrótta- og tómstundarstyrkur á sumarnámskeið!

Börn sem koma af tekjulægri heimilum og eru fædd á árunum 2005-2014 geta fengið 45.000 krónur í sérstakan íþrótta- tómstundarstyrk. Kannaðu rétt þinn á https://island.is/styrkur-til-ithrotta-og-tomstundastarfs. Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2021 - en hægt er að fá endurgreitt fyrir iðkun frá september 2020.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá þínu sveitarfélagi eða hér að neðan.

 

You can now use the special leisure activity grant this summer!

If your child is between 6 and 15 years of age, he or she could be entitled to a special activity grant of ISK 45.000. Application deadline is July 31. 2021 and you can get the grant for activities registered after September 2020. You will find further information about the grant below.

https://www.mcc.is/tomstundir-enska/

 

 

Teraz dotacja na zajęcia sportowe i rekreacyjne może zostać wykorzystana również na zajęcia letnie!

Dzieci z rodzin o niższych dochodach, urodzone w latach 2005-2014 mogą otrzymać 45.000 kr. dotacji na zajęcia sportowe i rekreacyjne. Sprawdź czy jesteś uprawniony do skorzystania z dotacji https://island.is/styrkur-til-ithrotta-og-tomstundastarfs. Okres składania wniosków upływa z dniem 31 lipca 2021. Dotację można przeznaczyć na zwrot za rachunki obejmujące zajęcia od września 2020 roku.

Dokładniejsze informacje uzyskasz w swojej gminie zamieszkania

https://www.mcc.is/tomstundir-polska/

 

 

Með bestu kveðju

 

Soffía Guðrún Guðmundsdóttir

félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík

Sími: 451-3510

 

Viltu verja sumrinu á Vestfjörðum

| 14. maí 2021

Vestfjarðastofa leitar að nemum með áhuga og þekkingu á  skipulagsmálum, umhverfismálum, gagnasöfnun og miðlun gagna.

Skilyrði og forsendur:

  • Sumarstörf eru fyrir námsmenn milli anna (þ.e. séu að koma úr námi og séu skráðir í nám að hausti).
  • Námsmenn þurfa að vera að lágmarki 20 ára á árinu.
  • Ráðningartími er 10 vikur á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst.

Störfin sem auglýst eru snúa að kortlagningu og greiningu innviða á Vestfjörðum, söfnun og miðlun gagna því tengt.  Jafnframt vinna með gagnasöfn og skráningu á vef.


Hæfniskröfur:

  • Góð tölvu- og tæknifærni
  • Hugarfar sköpunar, grósku og nýsköpunar
  • Þjónustulund og jákvæðni
  • Góð tal- og ritfærni

Viðkomandi getur unnið á einhverri af fjórum starfsstöðvum Vestfjarðastofu; Ísafirði, Patreksfirði, Hólmavík eða Þingeyri.

Störfin hljóta stuðning úr átaksverkefni um fjölgun sumarstarfa. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum FOS Vest við Samband íslenskra sveitarfélaga.


Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2020. Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (sirry@vestfirdir.is)
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið sirry@vestfirdir.is merkt: Sumarstarf

Umsóknir í Tónskólann fyrir næsta skólaár - fyrir börn og fullorðna

| 11. maí 2021
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir nám í Tónskólanum á Hólmavík veturinn 2021-2022: http://tiny.cc/TonskSkraning2021
 
Lokað verður fyrir skráningu kl. 16:00 föstudaginn 28. maí 2021 og gengið frá nemendalistum fyrir haustið. Ef einhver pláss eru enn laus eftir það verður opnað aftur fyrir skráningar fyrrihluta ágústmánaðar. Vakin er athygli á því að þegar umsókn hefur verið samþykkt er nemandinn skráður í Tónskólann allt skólaárið, bæði haustönn og vorönn. Núverandi nemendur þurfa einnig að skila inn umsókn vilji þeir halda áfram tónlistarnámi.
 
Athugið að ekki er víst að hægt verði að koma öllum umsækjendum að á þau hljóðfæri sem þeir sækja um og reglan sem kemur til með að gilda er “fyrstur sækir um, fyrstur fær”. Nemendur á grunnskólaaldri hafa forgang af þeim sem skrá sig fyrir 28. maí en aðrir grunnskólanemendur (sem eru skráðir síðar) fara aftast á listann, fyrir aftan fullorðna umsækjendur sem sóttu um fyrir 28. maí.
 
Boðið verður upp á einkatíma fyrir elsta árgang leikskólans (eingöngu blokkflauta í boði), alla árganga grunnskólanna á Hólmavík og Drangsnesi (athugið mismunandi lágmarksaldur fyrir mismunandi hljóðfæri) og einnig fyrir fullorðna. Allir grunnskólanemendur í 4. bekk og eldri verða einnig í tónfræði einu sinni í viku. Hóptímar verða í boði sem áður fyrir leikskólanemendur.
 
Leikskólabörn fá einn sameiginlegan tíma í viku og einn einkatíma. Börn í 1. og 2. bekk fá tvo 20 mínútna tíma á viku og eldri börn og fullorðnir fá tvo 30 mínútna tíma á viku, ef miðað er við fullt nám.
 
Einnig verður skólakór í boði fyrir nemendur í 2. til 6. bekk, samspil fyrir nemendur í 1. til 4. bekk og rokkband fyrir nemendur í 7.-10. bekk.
 
Hljóðfæra- og söngnámið sem er í boði:
 
Blokkflauta
Fiðla
Gítar
Rafbassi (4.bekkur yngst)
Píanó
Popppíanó (5. bekkur yngst)
Einsöngur (3. bekkur yngst)
Klarinett (3. bekkur yngst)
Saxófónn (4. bekkur yngst)
Trommur (2. bekkur yngst)
Þverflauta (4. bekkur yngst)
 
Kostnaður við námið kemur fram í gjaldskrá Strandabyggðar: http://www.strandabyggd.is/stjornsysla/gjaldskrar/skra/2059/
 
Skráning fer fram hér: http://tiny.cc/TonskSkraning2021
 
Fyrirspurnum má beina til aðstoðartónlistarskólastjóra í tölvupóstfangið bragi (hjá) strandabyggd.is

Sveitarstjórnarfundur 1318 í Strandabyggð 11.05.2021

Salbjörg Engilbertsdóttir | 08. maí 2021

Fundur nr. 1318, í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 11.maí 2021 kl 16.00 í Hnyðju.


Fundardagskrá er svohljóðandi:

1. Ársreikningur 2020 fyrri umræða
2. Beiðni um leyfi frá störfum sveitarstjórnar
3. Launakjör sveitarstjórnarfulltrúa
4. Samningur við Ráðrík
5. Forstöðumannaskýrslur
6. Nefndarfundir
a. Umhverfis og skipulagsnefnd 06.05.2021
7. Sterkar Strandir fundargerð 16.03.2021 og 8. 04.2021

 

Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Jón Gísli Jónsson
Ásta Þórisdóttir
Guðfinna Lára Hávarðardóttir
Pétur Matthíasson
Jón Jónsson

 

Strandabyggð 8. maí 2021
Jón Gísli Jónsson oddviti

Matvælastofnun biður um tilkynningar um dauða villta fugla

| 06. maí 2021


Matvælastofnun vekur athygli sveitarfélaga á að stofnunin óskar eftir tilkynningum ef villtir dauðir fuglar finnast í sveitarfélaginu, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum. Tilgangurinn er að skima þá fyrir fuglaflensu og fylgjast þannig með mögulegri útbreiðslu hennar meðal farfugla hérlendis. Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á vef stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is.

 

Sjá einnig frétt okkar um aukið viðbúnaðarstig.

 

https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/aukid-vidbunadarstig-vegna-fuglaflensu

Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón